112 dagurinn
Megináhersla verður lögð á að kynna starf sjálfboðaliðasamtakanna og mikilvægi þess.
Markmiðið með 112 deginum er að kynna neyðarnúmerið og starfsemi aðilanna sem
tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi
Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum.
Klukkan 14:00 á sunnudaginn 11. febrúar, á 112 daginn, munum við í slökkviliði Ísafjarðarbæjar hafa opið hús og vonumst til þess að sjá sem flesta. Að því búnu verða tækin til sýnis og sjálfboðaliðasamtökin, Rauði kross Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg, standa sameiginlega að dagskrá til að kynna starfsemi sína og verkefni sjálfboðaliða í öryggis- og almannavarnakerfi landsins.
Við það tækifæri mun Rauði kross Íslands tilkynna um val á skyndihjálparmanni ársins.
Samstarfsaðilar 112 dagsins eru: 112, Barnaverndarstofa, Brunamálastofnun, Flugstoðir, Landhelgisgæslan, Landlæknisembættið, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði kross Íslands, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.




