Öryggið verður meira
22/01/2010 klukkan 13:18
bb.is | 22.01.2010 | 13:01
Samningaviðræður standa nú yfir milli bæjaryfirvalda í Ísafjarðarbæ og Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar um öryggisþjónustu á Hlíf, þjónustuíbúðum aldraðra á Ísafirði. Mun sú þjónusta taka við af þeirri þjónustu sem þjónustudeildin hefur veitt til þess en eins og kunnugt er verður deildinni lokað um næstu mánaðamót. „Öryggið í húsinu verður mun meira ef eitthvað er, nú eru hnappar og spottar í húsinu sem fólk getur ýtt á ef það þarf á aðstoð halda en nýja þjónustan felst í því að fólk verður með hnapp á hendinni. Þegar ýtt er á hnappinn hringir síminn hjá þeim sem er á vakt og hann ræðir við viðkomandi á meðan aðstoð berst," segir Maron Pétursson, forstöðumaður Hlífar. Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sem séð hefur um sjúkraflutninga í sveitarfélaginu í þrjá áratugi. Að sögn Marons eru samningaviðræður á lokastigi.
Maron segist mjög ánægður með fyrirhugaðan samning. „Ég er mjög ánægður með að þjónustunni sé sinnt af heimamönnum og peningarnir haldist í byggðalaginu. Ég hef fulla trú á að þjónustunni verði sinnt mjög vel."