Plága herjar á slökkvistöðina
19/03/2009 klukkan 14:15
það hefur viðrað vel á svæðinu undanfarna daga og þó við fögnum hlýindum þá erum við ekki svo kátir með fylgifiska blíðunnar. Flugur í þúsunda-tali herja á okkur og fylla alla glugga slökkvistöðvarinnar. Líkleg skýring er að sjávarþang hefur safnast í sjóvarnargarð sem liggur með slökkvistöðinni. Ef einhver kann gamalt húsráð þá mætti sá hinn sami hafa samband við okkur á slökkvistöðinni.





Hjördís Þ., fimmtudagurinn 19 mars klukkan 15:36
Hehehe pínu hlægilegt, en frekar ógeðslegt samt. Faðir minn lenti í svipaðri plágu fyrir nokkrum árum. Þá var honum sagt að setja hvítlauksrif í gluggana (nokkur í hvern glugga) til að fæla þær í burtu - og hann sagði það virka, þ.e. þeim hefði fækkað til muna þó þær hefðu ekki alveg horfið.
Annars er það bara bani-1 sem fæst á bensínstöðinni =oP