Sinu / móbruni í eynni Vigur
22/04/2010 klukkan 21:30
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar barst beiðni um aðstoð vegna móbruna í eynni Vigur um kl. 07:00 í morgun. Slökkvilið Súðavíkur hafði barist við brunann frá því seintí gærkvöldi. Björgunarbátur Landsbjargar flutti slökkviliðsmenn og búnað inneftir, einnig var óskað eftir aðstoð frá björgunarsveitum og slökkviliði Bolungarvíkur. Eldurinn var dreifður á stóru svæði og varð að leggja mikið magn af slöngum um eynna og dælt var sjó ofan í lundaholur. Undir kvöld var búið að slökkva eldana að mestu, en ákveðið var að hafa vakt í eynni í nótt.




