Sjúkraflutningar sameinaðir

bb.is | 22.03.11

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt til að nýr samningur um sjúkraflutninga í Ísafjarðarbæ og í Bolungarvík, á milli Ísafjarðarbæjar og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, verði samþykktur. Í samningnum felst að Slökkvilið Ísafjarðarbæjar sér eins og áður, um sjúkraflutninga í sveitarfélaginu auk sjúkraflutninga í Bolungarvík. Samningurinn gildir til 31. desember 2013 og samningsupphæðin er 18,7 milljónir króna og er hún verðtryggð. Tvo starfsmenn þarf til að manna sjúkrabifreiðina allan sólarhringinn, allt árið, en einnig verður greitt fyrir útköll. Kostnaður vegna útkalla og bakvakta mun væntanlega aukast eitthvað með innkomu Bolungarvíkur, að því er segir í minnisblaði Daníels Jakobssonar, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, sem lagt var fyrir bæjarráð.

Þess má geta þess að sjúkraflutningum Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar fækkaði örlítið milli ára samkvæmt nýrri árskýrslu liðsins. Á síðasta ári voru sjúkraflutningsútköll 166 og þar af voru almennir flutningar 108 og forgangsflutningar voru 65. Árið 2006 voru sjúkraflutningarnir 170 sem var mikil fækkun frá fyrra ári þegar þeir voru 228 talsins.

Skrifaðu þitt álit: