Sjúkraflutningur í ófærð

Myndin tengist ekki fréttinni
Myndin tengist ekki fréttinni

Laust eftir klukkan 17:30 í dag var óskað eftir sjúkrabíl til að flytja veikan einstakling frá Suðureyri á sjúkrahúsið á Ísafirði. Ekki var um bráðaflutning að ræða, en þó þurfti sjúklingurinn að komast sem fyrst. Sjúkrabifreið lenti í vandræðum vegna ófærðar í Súgandafirði og varð að snúa frá vegna bíla sem voru fastir á leiðinni. Brugðið var á það ráð að fá aðstoð Björgunarsveitarinnar Bjargar á Suðureyri. Meðlimir sveitarinnar fóru á staðinn á Suðureyri og fluttu sjúklinginn í sjúkrabifreið sem beið við bæinn Botn í Súgandafirði og var hann kominn með sjúklingin á sjúkrahúsið á Ísafirði um klukkan 20:00.

Skrifaðu þitt álit: