Skipsstrand við Súðavíkurhöfn
15/12/2011 klukkan 21:42
Slökkvilið Ísafjarðbæjar fékk beiðni um aðstoð um kl 19:30 í kvöld. Báturinn Valur ÍS 20 hafði strandað við innsiglinguna í Súðavíkurhöfn. Mannskapur með dælur var sendur inneftir og fóru út með skipinu Papey sem dró Valinn af strandsstað. Engin leki kom að Valnum og var hann dreginn í höfninna í Súðavík.




