Slökkviliðsmenn heimsækja leikskólabörn
23/03/2011 klukkan 10:59
bb.is | 23.03.2011 | 10:46
Slökkviliðsmenn á Ísafirði heimsóttu elsta árganginn á leikskólanum Sólborgar í fyrradag. Var heimsóknin liður í samstarfsverkefni leikskólans og slökkviliðsins um eldvarnir og fræðslu sem kallast „aðstoðarmaður slökkviliðsins". Þar eru börnin frædd um brunavarnir leikskólans og munu þau sjá um að fylgjast með og fara eftirlitsferðir um leikskólann til að athuga hvort ekki sé í lagi í þeim málum. Frá þessu er greint á vef Sólborgar.