Stapinn
Eins og komið hefur fram í fréttum féll maður í Stapanum í Aðalvík í gær og fóru sjúkraflutningamenn frá Ísafirði í þetta útkall laust eftir klukkan 15:30. Farið var með bátnum Sædísi frá Bolungarvík og vorum við komnir í Stapann um klukkan 16:45. Það var lán í óláni að slökkviliðsstjóri frá Sauðárkróki var staddur í bát við Ritinn um það leiti sem útkallið kom og var hann ásamt fleirum kominn á staðinn mun fyrr ásamt björgunarsveitamanni frá Tindum í Hnífsdal. Aðstæður til björgunar voru góðar og auðvelt að komast að hinum slasaða. Talsverður fjöldi björgunarsveitamanna kom með björgunarskipi frá Ísafirði. Hin slasaði var fluttur í björgunarskipið Gunnar Friðriksson og hífður í TF-LÍF undir Grænuhlíð þegar þyrlan mætti um kl 18:30.
Slökkviliðsmenn heimsækja leikskólann Eyrarskjól.
Öryggisbúnaður!
Hjálmurinn skiptir höfuðmáli!
Nú þegar sólin er farin að skína, sjást fleiri og fleiri reiðhjól á götum bæjarins. Þá er mikilvægt að allur öryggisbúnaður sé í lagi. T.d getur hjálmurinn minnkað líkur á höfuðmeiðslum um 85%.
Höfuðmeiðsl
eru alvarlegustu áverkar sem hljótast af hjólreiðaslysum. Notkun hlífðarhjálms
kemur ekki í veg fyrir slysin en dregur úr alvarleika þeirra og minnkar
líkurnar á alvarlegum höfuðmeiðslum. Hjálmur getur greint á milli
heilahristings og höfuðkúpubrots og jafnvel lífs og dauða. Sérstaklega er
mikilvægt að börn noti hlífðarhjálm við hjólreiðar enda eru höfuð þeirra minni
og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru.
Ekki má gleyma að einnig eru gerðar kröfur um öryggisbúnað á línuskautum,
hlaupahjólum og hjólabrettum.
Samkvæmt lögum eiga öll börn 15 ára og
yngri að nota hjálm.
Foreldrar ættu alltaf að vera góðar fyrirmyndir.
Sjúkraflutningamenn á Ísafirði.
Þriðji bekkur Grunnskóla í heimsókn
Á hverju ári koma krakkar úr þriðja bekk grunnskólans á Ísafirði í heimsókn til okkar. Okkur hefur þótt viðeigandi að sína þeim þakkir fyrir þáttöku í eldvarnavikunni sem haldin er í desember ár hvert með þessum hætti. Við sínum krökkunum slökkvistöðina, bíla og önnur tæki slökkviliðsins. Krakkar í 3 HA hafið þakkir fyrir komuna og bestu kveðjur til ykkar allra :)




