Eldur í moksturstæki
Slökkvilið Ísafjarðarbæjar fékk tilkynningu kl 07:23 um að eldur logaði í moksturtæki sem statt var í Hnífsdal. Var sendur einn bíll á staðinn, en ökumanni moksturstækis hafði tekist að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á staðinn. Eldsupptök eru ókunn, en eldurinn logaði í vélarúmi. Að sögn eiganda vélarinnar eru skemmdir talsverðar.
Mynd vikunnar
Útkall með bb Gunnari Friðriks
Hættuleg efni leynast víða
Í dag var slökkvilið Ísafjarðarbæjar fengið til að fjarlægja eiturefni úr húsi í Dýrafirði. Eigandi húsins hafði verið að taka til á háalofti þegar hann rakst á tvo brúsa sem innhéldu fljótandi Níkótín. Hafði hann samband við lögreglu sem kom boðum á slökkvilið. Samkvæmt þeim upplýsingum sem slökkvilið Ísafjarðarbæjar fékk um efnið er það mjög hættulegt við innöndun og snertingu á húð. Var því efnið sótt og því komið til aðila sem eyðir því á öruggan hátt.
Æfingin á Flateyri
Æfingin á Flateyri tókst vel, farið af yfir tækin á staðnum og æft á þau. Það var góð mæting og bara góð stemming í mannskapnum. Áhuginn var svo mikill að ákveðið hefur verið að bjóða strákunum á Flateyri á næstu æfingu Ísafjarðarliðs sem haldin verður núna í lok vikunnar. Búið er að setja inn myndir sem teknar voru á æfingunni.




