Mynd vikunnar

Spenntur strákurinn ?
Spenntur strákurinn ?
Að þessu sinni var ákveðið að sína mynd  frá fyrsta starfsdegi Bigga Finns sem slökkviliðsmanns. Honum fannst svo gaman að hann sat í gallanum allan daginn og beið eftir útkalli. Fyrir þá sem ekki vita þá starfar Birgir Finnsson hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og er sviðsstjóri útkallssviðs. Við óskum Bigga til lukku með heiðurinn að fá að birtast undir þessum lið ( mynd vikunnar).

Tilkynning vegna Byggingarreglugerðar

Byggingarreglugerð nr. 441/1998- Breyting (2006-11-0047) .Vakin er athygli á því að 8.janúar sl tók gildi reglugerð nr.1163/2006 sem felur í sér breytingu á reglugerð nr. 44/1998 . Breytingar eru settar fram í 39 greinum og taka aðallega til brunatæknilegra atriða, þ.á.m ákvæði um bil á milli húsa, breidd stiga í flóttaleið og fleira.Hægt að nálgast reglugerðina með breytingum, á vef  Umhverfisráðuneytis og Brunamálastofnunar ríkisins.

Bílar rifnir í sundur til að bjarga mannslífum

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu (SHS) prófaði í gær nýja aðferð sem flýtir fyrir því að ná fólki út úr bifreiðum eftir harða árekstra, en hún felst í því að toga bílana í sundur. Aðferðin er kölluð hraðbjörgun. Með henni er auðveldara fyrir slökkviliðsmenn að komast að með klippur og losa fólk undan mælaborði og stýri, sem jafnan þarf að beita tjökkum á. Þessi aðferð getur bjargað mannslífum þar sem björgunarstarf á að ganga mun hraðar fyrir sig....

Kona þurfti að ganga milli hæða til að komast í keisaraskurð

bb.is | 21.02.07 | 08:19
Aðeins ein lyfta er á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði og bilaði hún í síðustu viku, einmitt þegar að kona þurfti að komast í keisaraskurð, eftir fimmtán klukkustunda hríðir. Matthildur Valdimarsdóttir er konan sem um er rætt og segir hún afar óheppilegt að lyftan skyldi hafa bilað einmitt þegar hún þurfti að komast niður á skurðdeild. Hún gat þó með herkjum gengið á milli hæða og komst niður á næstu hæð þar sem aðgerðin var framkvæmd. Þegar keisaraskurðinum var lokið og móðirin þurfti að komast upp til nýfæddrar dóttur sinnar sem þar beið, þá var lyftan enn biluð. Kalla þurfti út sjúkraflutningamenn til að bera hina nýbökuðu móður á milli hæða. Matthildur segir mildi að ástand hennar hafi ekki verið alvarlegra. Hún þakkar starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins þeirra viðbrögð og segir þau hafa gert allt til að létta henni lífið undir þeim kringumstæðum sem sköpuðust....

Gera á úttekt á varaleiðum ef Vestfjarðagöng skyldu lokast

bb.is | 19.02.07 | 07:03
Lilja Rafney Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans, lagði fram tillögu fyrir hönd Í-listans á fundi bæjarstjórnar á fimmtudag um að því yrði beint til Vegagerðarinnar og Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar að úttekt verði gerð á því hvaða varaleiðir sé hægt að nýta í neyð ef Vestfjarðagöng lokast vegna slysa, eldsvoða eða óhappa við flutning hættulegra efna, eða annarra ófyrirsjáanlegra orsaka....

Mynd vikunnar

Takið eftir stellingunni
Takið eftir stellingunni
Okkur langar til þess að setja inn mynd vikunnar og mun það vonandi verða á föstudögum framvegis.
Að þessu sinni er myndin af fjallmyndalegum slökkviliðsmanni honum Maron Pétursyni. Myndin er tekin á síðustu stórslysaæfingu sem haldin var á Ísafjarðarflugvelli.

Amoníak

Það er leiðindar lykt af Amoníaki
Það er leiðindar lykt af Amoníaki
Leki kom að Amoníaks kerfi í atvinnuhúsnæði við Sindragötu á Ísafirði á tíunda-tímanum í morgun. Lekinn reyndist vera minni en óttast var og var hægt að skrúfa fyrir kerfið með lítilli fyrirhöfn. Framkvæmdir hafa staðið yfir í húsnæðinu og hafði krani gefið sig. Slökkviliðið aðstoðaði eigendur við að loftræsta húsnæðið og var stutta stund á staðnum.

Fréttasafn