Rauði haninn Leipzig 2010
Fimmtu-, föstu- og laudagdagur voru síðan nýttir til að skoða allt sem var í boði á sýningunni.
Sunnudeginum eyddum við síðan í ferðina heim til Ísafjarðar. Myndir úr ferðinni koma inn síðar.
Flugslysa æfing
Sinu / móbruni í eynni Vigur
Rauði Haninn
Rauði Haninn er sýning sem haldin er á fimm ára fresti í Þýskalandi ( Interschutz Der Rode Hahn). Þetta sýning á búnaði fyrir slökkvilið og ein sú stærsta í heimi. Allir framleiðendur björgunarbúnaðar kappkosta við að fá inni á sýningunni. Í gegnum tíðina hafa slökkviliðsmenn frá Ísafirði farið á þessa sýningu og fór hópur manna á sýninguna 2005 og að sjálfsögðu mun stór hópur slökkviliðsmanna sækja sýninguna sem haldinn verður 7 - 12 júni n.k. í Leipzig í Þýskalandi. Hér að neðan er slóð á heimasíðu sýningarinnar:
Interschutz Der Rode Hahn
Flugslysa æfing
Í byrjun maí verður haldin flugslysa æfing við Ísafjarðarflugvöll. Æfingin er haldin af Flugstoðum og mun slökkvilið Ísafjarðarbæjar ásamt öðrum viðbragðs-aðilum taka þátt í æfingunni. Fyrirkomulag verður svipað og á fyrri æfingum sem haldnar hafa verið á flugvellinum. Í grófum dráttum verður æft frá fimmtudegi til laugardags. Við munum gera æfingunni betri skil síðar hér á heimasíðunni.
Prófuðu nýtt skautasvell
Vel tókst til við gerð skautasvells á Suðurtanganum á Ísafirði en starfsmenn Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar hafa að undanförnu sprautað vatni á opið svæði þar til að útbúa skautasvell. Skautasvellið hefur strax vakið áhuga bæjarbúa og má fastlega búast við að Ísfirðingar þurrki rykið af skautum sínum og taki nokkra snúninga á næstu dögum. Ljósmyndari bb.is smellti í dag myndum af tveimur ungum stelpum sem reyndu fyrir sér á svellinu með glæsibrag og voru að sjálfsögðu vel klæddar og með hjálma.
Skautasvell tilraun ?
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin eða eitthvað í þá áttina. Að ósk íþrótta og tómstundafulltrúa var ákveðið að reyna við svellið einu sinni enn. Að vísu hafa allir tilburðir við gerð skautasvella í gegnum tíðina verið ávísun á hlýjindi, en við skulum vona að það gangi betur í þetta skiptið. Í sumar sem leið var útbúið svæði undir svellið og sú tilraun lofar góðu. Ef allt fer að óskum og frostið sem veðurstofan hefur lofað helst ætti því að vera komið gott svell seinni partinn á morgun..




